Monday, June 25, 2007
...

 

  • Well well - ætla að flytja mig um set í netheiminum
  • Er með smá svona private komplexa og vill geta læst síðunni sem er víst ekki hægt hér á blogdrive, eða allavega finn ég þá ekki fídusinn neinsstaðar !
  • Efast samt um að nýja bloggið verði e-ð virkt í sumar, en þar verður gerð breyting á þegar hausta tekur
  • Svo er meira að segja myndaalbúm þar þannig að kannski fer ég að taka myndir!! About time maður!
  • Annars fékk ég mér svona tracker fyrir nokkrum mánuðum og meikaði ekki að blogga lengur þegar ég sá frekar mikið hver og hvaðan var verið að skoða síðuna og google - tíðni og fleira...
  • Held ég sleppi þessum tracker hér eftir
  • Ekki það að ég hafi verið svona gífurlega vinsæl - bara óþæginlegt að einhverju leiti
  • Annars kveð ég bara blogdrive með trega
  • Hann hefur staðið með mér í gegnum súrt og sætt og virkilega staðið fyrir sínu
  • Í guðs bænum ekki hika við að biðja mig um leyniorðið börnin góð eða senda mér meil á: kaa2@hi.is

Annars er nýja bloggið: www.katrinamni.bloggar.is   frumlegra var það nú ekki :D

 

Bæ blogdrive - miss u already


Posted at 14:22 by katrinamni
Comments (2)  

Sunday, June 17, 2007
Who am I kidding ?

 

Þetta blogg fær ekki að deyja - ég ætla ekki að loka því en lofa ekki mörgum færslum áður en ég fer út í haust, þá skal allt blómstra hér úr skrifum og myndum (ef ég drullast til þess að kaupa mér myndavél einn daginn) Koma svo !!

  • Punktar eru kúl held ég bara
  • Þetta sumar hefur byrjað svona allsvakalega vel held ég bara
  • Vinnan gengur vel - þó svo suma daga líður mér eins og það séu 4 heilasellur eftir í hausnum á mér en þó einungis tvær starfræktar
  • Well ó well - engu að síður rosalega gaman og mjög spennandi í alla staði
  • Ekki skemmir að liðið sem ég vinn með er mjög samheldið og jafn fáránlega steikt og ég sem gerir þetta allt hið skemmtilegasta
  • Annars skrapp ég til Akureyrar í byrjun mánaðar í eitt rosalegasta partý aldarinnar þar sem ég kom heim með glóðurauga, skurð á nefinu og brákað enni (ef hægt er að bráka ennið á annað borð)
  • Semsagt - ég hélt í öllu mínu sakleysi kl. fimm um morgunin eftir partýið, ágætlega í´ðí að ég gæti gert arabaflikk á stofugólfinu...
  • Ég komst semsagt að því að ég get ekki gert arabaflikk mikið lengur
  • Nema góð lending teljist vera á nefinu
  • Jæja
  • Matarboð fyrv. stjórnar Vöku var sl. föstudag og formaðurinn kunni svo SANNARLEGA að blanda hin ýmsu skot og drykki og hvað þetta allt heitir
  • Allavega var þynnka gærdagsins hin undarlegasta í langan tíma
  • Náðum samtsem áður að afreka marga hluti í gærkvöldi þrátt fyrir skjálfta og hausverk
  • Gærkvöldið einkenndist af út að borða með giftingargæs, matarboð með geðveikum humri, útskriftarveislu með garðtjaldi og svo gæsunarframhaldspartý - allt þetta á einu kvöldi, geri aðrir betur !
  • Slóvenía eftir 10 daga og brúðkaup í Slóveníu eftir 13 daga
  • Það verður fallegt
  • Ferðalag dauðans engu að síður en mér er allveg sama svo lengi sem ég fæ að sjá vinkonu mína gifta sig - úújeeee
  • Og auddað fá sér kokteila og tji-hilla
  • I´m out of hía
  • Gestabloggarar velkomnir

 ~ Katan ~


Posted at 21:58 by katrinamni
Comments (4)  

Sunday, May 27, 2007
Sumar humar

 

Nei ég skal ekki eyða þessu bloggi - sérstaklega þar sem ég ætla að verða rosalega dugleg í haust þegar ég fer út til Flórída að blogga... fjandinn hafi það!

  • Annars er margt búið að gerast
  • Allt voða jákvætt
  • Prófin búin - búin að fá tvær einkunnir.. allt gekk vel þar á bæ
  • Hlutirnir gerast líka ótrúlega hratt - en ég er byrjuð að vinna
  • Og það í Kaupþing
  • Annars er bara komið sumar og ég ætla ekki að hanga í tölvunni um helgar þegar ég á frí
  • Farin í sund
  • Love and peace

 


Posted at 13:37 by katrinamni
Comments (4)  

Friday, May 11, 2007
YESS

  • Ég er fríking búin í prófum !!!
  • Ég hélt að þeim myndi aldrei ljúka !
  • Ég er svo glöööööð með það!
  • Ég er svo glöð með þessa sól
  • Ég er svo glöð með að það sé föstudagur
  • Hins vegar er ég EKKI glöð með þessa gulu og svörtu röndóttu loðnu FUGLA sem virðast elta mig útum ALLT ! :(
  • Ég meina það frá mínum innstu hjartarótum að ef einn svona fugl snertir mig þá dey ég.. ég veit það bara ég dey !
  • Ég held ég þurfi að fara til sála - þar sem ég fer að fá kvíðaköst útaf þessum viðbjóðslegu dýrum sem virðast komast leiða sinna endalaust - fljúgandi útum allt, innum glugga og fleira! Ohhh
  • Annars er ég glöð
  • Ég er líka glöð að vera að fara að vinna í Landsanum í sumar
  • Fyndið hvað hlutirnir enda aldrei eins og maður planar þá
  • Ég er líka svo glöð að vera að vinna niðrí bæ í sumar
  • Ég er líka glöð með það að 30. ágúst verð ég stungin af í amk. 4 mánuði
  • Það er ógeðslega gaman
  • Mig hlakkar svo til að gera allskonar skemmtilegt í Flórída og með Írisi í amerískum bíómynda partýum
  • Ég er löngu búin að viðurkenna þetta - ég er bara ógeðslega amerísk og því verður ei breytt
  • Ég ætla að djamma um helgina
  • Ég hef ekki djammað í fimm eða sex vikur
  • Það er langur tími fyrir unga, einhleypa og barnslausa konu eins og mig
  • Því verður breytt um helgina
  • Og ég ætla í dekur með Betu á morgun í Laugum
  • Ég á það skilið
  • Ég á allt gott skilið
  • Sjitt hvað ég er jákvæð
  • Muna að kjósa rétt á morgun!

X-D

 


Posted at 19:27 by katrinamni
Comments (5)  

Thursday, May 03, 2007
Punktablogg dagsins

 

  • Mér leiðist
  • Mér leiðist að læra
  • Mér leiðist að leiðast að læra
  • Mér leiðist það að finnast ekki gaman að læra
  • Mér leiðist það að vera neikvæð
  • Það fer ekki outfitti dagsins vel
  • Þess vegna er ég hætt að leiðast
  • Ég er að fara í SPA fótsnyrtingu á eftir í Laugum
  • Ég nebbla fékk svoleiðis gjafabréf frá elsku vinkonum mínum í afmælisgjöf
  • Ég fékk sko ÞRJÚ gjafabréf þaðan
  • Ég er ótrúlega ánægð með það - enda ótrúlega jákvæð manneskja
  • Kaffibollinn minn er hálffullur
  • Ég mun heiðra Flórída fylki með nærveru minni í haust
  • Þar ætla ég að dvelja í 4 mánuði við leik og störf
  • Aðalega leik þó, jú og smá nám
  • Ég er semsagt að fara í skiptinám í Eckerd College 
  • Djöfull verður það gaman
  • Það verður sól - mér finnst það ofsalega gaman líka
  • Íris ætlar alltaf að koma og fljúga til mín og við ætlum að tji-hi-hilllaaa
  • Hún er búin að lofa því að vösku sveinarnir þar séu sko ekki fáir
  • Hún er nottla með sveinspróf... muwahaha
  • Æj nei annars það er Systa
  • Jæja
  • Nema hvað ég held að Hafnarstrætið fái að njóta nærveru minnar í sumar
  • I´m in the bull hvað varðar vinnu
  • Skrifa betur um það seinna þegar gengið hefuð verið frá því
  • Mig langar að ganga á fjöll í sumar
  • Og fara á línuskauta
  • Og hjóla
  • Mér finnst ofsalega gaman að það sé að koma sumar
  • Mér finnst lika ofsalega gaman að ná prófunum mínum
  • Þess vegna held ég held að það sé komin tími til að fara glugga í bækurnar
  • Verið sæl og bless að sinni
  • Kamni kveður frá Bókhlöðunni - hinni frábæru byggingu hér í Reykjavíkurborg

 

 


Posted at 16:05 by katrinamni
Comments (7)  

Thursday, April 26, 2007
Prrrruuuump!

 

Hæææææ

Okei sko fyrst ég nenni ekki að blogga í prófum þá er e-ð MIKIÐ að ! Held að tími þessa bloggs sé liðin :( Búin að lifa í voninni lengi.. ritmátturinn hefur gjörsamlega glatast undanfarið, hvert hann hefur farið er mér dulin ráðgáta - ráðgáta sem ég hef ekki enn getað leyst...

Annars er Bókhlaðan búin að vera mitt second home sl. daga, og ég sverða annaðhvort ég er að ganga af göflunum eða fólkið sem er hér í kringum mig. Áðan var ég í kaffiteríunni og svo heyrði ég gelt, svona mannagelt... ég get svo svariða ég veit ekki enn hvort ég hafi verið með ofskynjanir eða helv. spænski gaurinn sem vinnur þarna i kaffiteríunni hafi beisiklý verið að gelta.. ástæðuna fyri geltinu skil ég þá hins vegar ekki.

Nú annað dæmi - ég sit hérna í grafarþögn og áðan heyrðist mér gaurinn fyrir aftan mig hafa verið e-ð svona að tísta eins og fugl.. ég svo í guðsbænum vona að hann hafi verið að því - því annars er ég farin að hafa verulegar áhyggjur af geðheilsu minni.

Annars myndi ég segja að þessi önn hefur gjörsamlega farið framhjá mér, skemmtilegt hvað ég segi þetta í lok hverrar annar, aldrei mun ég læra - aldrei mun ég skilja, aldrei mun ég syngja eða gelta ég veit það ekki.

Okei - ég er ekki búin með eitt próf og ég er orðin svo ógeðslega steikt.. þetta lofar ekki góðu ég get svo svariða. Í hverri kaffipásu (þær eru svona þrettán talsins yfir daginn) þá sit ég bara í hláturskasti útaf ENGU og finnst allt fyndið og sniðugt - þrátt fyrir að það er bara allskostar ekkkert fyndið við þessi próf... æj ég veit það ekki held ég þurfi að fara að taka inn einhverslags lyf við þessu.

Ljótan hefur svo sannarleg gert vart við sig - merkilegt hvað hún svíkur mann aldrei, alltaf kemur þessu elska yfir prófin - just gotta love it... Ég sem ætlaði ekkert að bregða útaf þótt að prófin væri - ætlaði bara ða halda mínu striki, skreppa smá í ræktina og setja smá púður á nebbann á morgnana - nei nei, planið fauk útúm gluggann á þriðja degi.. það er bara joggarinn, og nammið og ógeðis kaffið og bara já allt sem gerir mann ekki smart.

Ég vona að ef e-r les þetta blogg mitt mikið lengur að hann hafi komist klakklaust í gegnum þessa færslu. I did not...

Okei þá - bless þá - já ég sagði bless þá

mig langar í drykk - sterkan drykk.. bara einhvernveginn drykk...

stock photo : cocktail drink with white zin,cranberry juice, shaken, add a splash of chambord, serve with wedge of lime

skál í boðinu - thats all I have to say


Posted at 20:23 by katrinamni
Comments (6)  

Tuesday, March 27, 2007
Gleðihneta

 

Ó já - ofan á ógeðslega hópverkefnið sem ég er að reyna að gera er samt spenningur í loftinu. Held nebbla að ég ætli bara að skella mér til Boston á morgun í nokkra klukkutíma - versla smá "nauðsynjavörur sem aðeins fást í USA að hætti Katrínar" og borða góðan mat og hanga með mömmu minni. Þar ætla ég einnig að eyða afmælisdeginum mínum!

Já börnin góð, ég verð 24 ára gömul nk. fimmtudag, ég hlýt nú að bera aldurinn svona afskaplega vel þar sem ég er beðin skilríki þegar ég fer út í búð og kaupi mér brauð, hvað þá aðrar mikilvægari vörur eða jafnvel læt mér detta það til hugar að heimsækja skemmtistaði borgarinnar! Þá er ég farin að taka með mér fimm skilríki og passann minn sem og staðfestingu frá yfirvöldum. Önnur staðfesting á því að ég hlýt nú að bera aldurinn svona mæta vel er það að ég tek eftir því í tíma og ótíma að fólk tekur ekki almennt mark á mér yfir höfuð - horfir bara á mig þegar ég tala og brosir og labbar svo í burt, væntanlega að hugsa "oooooh litla krúttið - hún er svo lítið og veit ekkert hvað hún er að segja, ohhh".

Þannig AÐ afmælið er ekki tímamót hvað þá merki um öldrun! Annars er ég lúmskt afmælisbarn í mér - held að mamma hafi alið það í mér þar sem hún býður alltaf stórfjölskyldunni heim í kaffi og kökur sama hversu gömul ég er orðin. Oft veit ég ekkert af því þar sem upplýsingaflæðið á heimilinu hefur oft verið ábótavant, þannig að oft kem ég heim og þar er búið að stofna til ættarmóts þar sem ættingarnir bíða eftir afmælisbarninu  Já það er alltaf gaman að eiga afmæli.

Hvað þá núna þar sem ég ætla að sameina allar mínar góðu, yndislegu vinkonur og fylla þær af áfengi þannig að öll plön um prófaupplestur daginn eftir falla eins og spilaborg !! Yesss... stelpur þið sem eruð í skóla, ég er alfarið á móti lærdómi eða einhverslags aktivítís daginn eftir afmælið mitt. Seinkjúverymötsforthat!

Jæja - lærdómur í dag og US of the A á morgun OG afmæli hinn!

Veriði skess í bili 


Posted at 10:24 by katrinamni
Comments (13)  

Saturday, March 24, 2007
Space man

Þetta veður er svo fáránlega steikt að það er varla fyndið lengur. Áðan var ég að keyra, sólin skein og það var blankalogn og fallegt. Núna 2 tímum seinna er storumur fyrir utan hjá mér og ég bara gjörsamlega bíð eftir að þetta blessað hús fjúki frá grunni.

Vá hvað ég ætla ekki að enda sem fulla gellan allar helgar (ef það er ekki orðið of seint) - fór út í gær og kom heim þegar móðir mín var að labba út úr dyrunum á leiðinni í flug. Smartað!

Fór með Kastljósfólkinu að borða á 101 - endaði þar nottla ágætlega hífuð og hélt svo í stelpupartý seint og síðarmeir hjá Erlu Dögg. Það var allavega það mikið stuð á okkur að við dröttuðumst í bæinn kl. 3 - þá vaknar upp sú spurning, af hverju að fara alltaf í bæinn ? Til að blikka sæta stráka ? Neeeeeii ekki allveg! Mér finnst allir karlmenn á djamminu með standpínu - ég veit það ekki. 

Það er svo margt sem ég fæ ekki skilið - þá sérstaklega hluti eins og Myspace, mér finnst bara frekar klúrt þegar fólk segir ekki hæ við mann í Kringlunni eða á djamminu, svo brunar það heim til sín og KOMMENTAR á prófile-inn manns! Hvaaaaaað er þaaaaaað??

Oh íslendingar eru svo spes. Virkilega finnst mér spes lið sem fer í ræktina, pumpar sig upp, ber á sig olíu eða e-n fjandann og tekur svo sjálfsmynd (mér finnst sjálfsmyndir svo ógeðslega vandræðanlegar að orð fá því bara ekki lýst!) Nema þú sért einn í fokkans Effel turninum eða eitthvað svipað! En já aftur að skrítnu fólki - tekur mynd af sér hálfallsbert og setur svo á Myspace-ið sitt. Nei kommon pípol get real hérna!

Þetta lið sem er í þessum ungfrú og herra keppnum (blabla ber fulla virðingu fyrir þessum keppnum upp að vissu marki...) nema hvað þetta lið er með kórónurnar og borðana á sér á öllum myndunum sem það er með af sér á Myspace. Er virkilega kúl af hafa svoleiðis? Er ég kannski bara allveg tíksufyrrt? Ég á klárlega margt eftir ólært í þessu lífi, því mér er bara lífsins ómögulegt að skilja þetta. Sérstaklega finnst mér fyndið þegar lið er með margar bls. af myndum af sér á prófile-num sínum.

Úff ég sverða ég held að þetta Myspace hafi hrundið af stað þvílíkri sjálfsdýrkunaræði að fólk er gjörsamlega að tapa sér. Stelpur fá séns - en strákar ? Strákar ekki setja af ykkur myndir þar sem þið eruð berir að ofan og svo rauðir í framan þar sem þið voruð að reyna að spenna magavöðvana svo mikið að þið náið ekki andanum. Plííís fyrir okkur hin !!

Sérstaklega finnst mér skemmtilegt þegar strákar  (þessir sem eru berir að ofan og rauðir í framan) eru með mynd af bílnum sínum. Já ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá vinaboð frá einstaklingum sem virkilega setja mynd af bílnum sínum inn á síðuna sína. Nú eða mótorhjóli. Merkilegt einnig þykir mér svona gaurar sem skrifa status: serious relationship  og senda manni svo línu "hæ sæta! á að gera eitthvað í kvöld?"  okei smá spurning hérna, ætlast þessir drengir til þess að maður SVARI ??

Ohhhhh ég veit það ekki, þetta er svo misskilið að það nær engri átt.

Einnig þykir mér merkilegt þegar maður neitar vinaboði (ég er að reyna að íslenska þetta hérna) og svo fær maður meil "bídduuu viltu ekki vera vinur minn ??" HALLÓ ég gerði deny! Þarftu þá að spurja ?

(ég er umþaðbil að fatta að ef einhver sem kann ekki á Myspace er að lesa þetta mun sá sami ekki skilja orð í þessari færslu).

Nema hvað, stelpur sem eru með bikiní myndir af sér - er það djók? Eða er ég bara svona óttalega stíf og íhaldsöm ? Ég bara skil þetta ekki. Af hverju ?

Æji ég ætti ekki að tjá mig frekar um þetta. Það er bara svo margt, svo MARGT sem ég skil ekki við þetta. En engu að síður örugglega margt gott við þetta líka, gaman að vera í bandi við fólk sem býr í útlöndum og gaman að segja frá því að ég á hálfbróður sem býr í Bretlandi sem ég hef hvorki heyrt af né séð í 10 ár, og hann fann mig á Myspace sem er ágætlega merkilegt. Þess vegna eru þessar tilfinningar mínar svona blendnar gagnvart þessum vef. Ég hef lengi vel hugsað hvort maður ætti bara að hætta að taka þátt í þessu - en svo á móti kemur að þetta er sniðugt á allskonar máta.

Ég fékk mér þetta blessaða Myspace snemma árið 2004 og þá var hægt að telja íslendingana þar á fingrum annarrar handar, en vinur minn í LA sýndi mér þetta. Þarna úti og annars staðar er þetta notað í svo ALLLT öðrum tilgangi en á Íslandi. Hér á Íslandi þarf alltaf allt að snúast upp í hössl leiðir eða sýndarmennsku. Það er aldrei hægt að hafa neitt bara normal - hér er allt sprengt upp og fólk komið með klámmyndir af sér og bílamyndir og allskonar asnalegt að ég fæ iðlulega kjánahroll þegar ég skoða hina ýmsu prófæla.

Merkilegt líka hvað sumt fólk er að keppast við að eiga sem flesta vini, accept-in mín eru 10 sinnum færri en deny-in. Ekki af því að mér finnst ég svo fabjúlös og merkileg - nei ég bara sé nákævmlega engann tilgang í því að samþykkja lið sem mér finnst asnalegt eða þekki ekki neitt og langar ekki að þekkja. Sérstaklega þykir mér líka orðið pirrandi hvað þetta er orðið mikið auglýsingatrikk, að naglaskóli, eða naglakonur og "ebay" síður og fleira er að biðja mann um að vera vinir sínir.

En jæja þetta er svosem bara mínar pælingar.

______________________________________________

 

Fyrirvari er settur á þessa færslu þar sem höfundur er ágætlega timbraður. Þá eru heilasellurnar seinar á því og sumar jafnvel ekki við störf.

 

Dj - Amma kveður

 


Posted at 18:55 by katrinamni
Comments (3)  

Wednesday, March 21, 2007
Skólarapp

Já og jæja - heyrst hefur að kominn sé lok mars og að prófin fara að ganga í garð.

Hvaða fokkans próf?? Ég held ég hafi náð botni tossaskaparans þessa önnina, ég get svo svariða! Ef ég færi í tossakepnni ég myndi rústa henni!

Ég er bara að gera nákvæmlega allt annað en að læra, helst fer tíminn minn í vinnuna sem er ógeðslega gaman í, já eða hvítvínssötr á öldurhúsum borgarinnar nú eða í nýja áhugamálið, ræktin! Já gott fólk þið eruð ekki lesblind ég sagði RÆKTIN. Hvað er það? Það er gaman að lifa...

Annars ætla ég að skella mér til the US of the A í næstu viku, bara í örstutt stopp þar sem ég á víst afmæli þann 29. mars mánaðar. Ákvað að skella mér með mömmu minni bara örstutt og stefni ég á ágætis versl og góðan mat. Svo kem ég heim og ætla að halda magnað stelpuafmæli - langt síðan ég hélt afmæli síðast þannig að ég ætla að hafa þetta ofsalega bjútífúl - jey!

Svo finn ég myspace færsluna vera að koma - ég held ég geti bara ekki beðið mikið lengur með hana... það er bara svo margt, já svo margt sem mér finnst um það og eru þessi blogg ekki til þess að leyfa fólki að segja hvað því finnst ? Jújú... okei ég skal starta henni hérna með einni setningu, "strákar berir að ofan - og stelpur á bikiníi" oh lord...

Annars verð ég bara að koma því fram að mér finnst ég eiga bestu vinkonur í heiminum, og þá meina ég ykkur allar sem eruð búnar að vera mér svo ótrúlega kærar. Þá sérstaklega síðastliðinn mánuðinn sem er búin að vera vel steiktur ! Ég vona að ég geti reynst ykkur öllum jafn vel í framtíðinni ...Ef ókunnugt fólk er að lesa þetta blogg þá verður það bara að þrauka þar sem ég hef ávallt verið mjög ófeimin varðandi væmni...

Og svo er ég að tapa mér í gullkorna-bókum.. ætti kannski bara að fara skella inn einu gullkorni með hverju bloggi, sérstaklega í þessum heimi sem virkilega versnandi fer.

Jæja - þessari munnræpu þarf að ljúka.

Kata Arabi


Posted at 11:32 by katrinamni
Comments (4)  

Wednesday, March 14, 2007
Sveittur pungur með bólu

 

Okei ég hef lengi setið á mér með að henda inn feitri færslu um Myspace og margt sem viðkemur því og hvað sumt fólk er að misskilja - og ég held ég ætla að reyna að stija á mér aðeins lengur. Að skrifa bara þetta er meira að segja smá losun ég sverða.

Annars er mesta svitalykt allra tíma inn á Þjóðarbókhlöðunni og búin að vera í allan dag.

Ullabjakk

Ætti kannski líka að smella inn eitt stk. færslu um helgina sem leið, hún var virkilega skrautleg og jah endaði með fylleríi á sunnudag líka !

Það er gaman að lifa!

Úff svitalykt!! I´m out of hía !!


Posted at 17:55 by katrinamni
Comments (3)  

Next Page
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed