Ó já - ofan á ógeðslega hópverkefnið sem ég er að reyna að gera er samt spenningur í loftinu. Held nebbla að ég ætli bara að skella mér til Boston á morgun í nokkra klukkutíma - versla smá "nauðsynjavörur sem aðeins fást í USA að hætti Katrínar" og borða góðan mat og hanga með mömmu minni. Þar ætla ég einnig að eyða afmælisdeginum mínum!
Já börnin góð, ég verð 24 ára gömul nk. fimmtudag, ég hlýt nú að bera aldurinn svona afskaplega vel þar sem ég er beðin skilríki þegar ég fer út í búð og kaupi mér brauð, hvað þá aðrar mikilvægari vörur eða jafnvel læt mér detta það til hugar að heimsækja skemmtistaði borgarinnar! Þá er ég farin að taka með mér fimm skilríki og passann minn sem og staðfestingu frá yfirvöldum. Önnur staðfesting á því að ég hlýt nú að bera aldurinn svona mæta vel er það að ég tek eftir því í tíma og ótíma að fólk tekur ekki almennt mark á mér yfir höfuð - horfir bara á mig þegar ég tala og brosir og labbar svo í burt, væntanlega að hugsa "oooooh litla krúttið - hún er svo lítið og veit ekkert hvað hún er að segja, ohhh".
Þannig AÐ afmælið er ekki tímamót hvað þá merki um öldrun! Annars er ég lúmskt afmælisbarn í mér - held að mamma hafi alið það í mér þar sem hún býður alltaf stórfjölskyldunni heim í kaffi og kökur sama hversu gömul ég er orðin. Oft veit ég ekkert af því þar sem upplýsingaflæðið á heimilinu hefur oft verið ábótavant, þannig að oft kem ég heim og þar er búið að stofna til ættarmóts þar sem ættingarnir bíða eftir afmælisbarninu Já það er alltaf gaman að eiga afmæli.
Hvað þá núna þar sem ég ætla að sameina allar mínar góðu, yndislegu vinkonur og fylla þær af áfengi þannig að öll plön um prófaupplestur daginn eftir falla eins og spilaborg !! Yesss... stelpur þið sem eruð í skóla, ég er alfarið á móti lærdómi eða einhverslags aktivítís daginn eftir afmælið mitt. Seinkjúverymötsforthat!
Jæja - lærdómur í dag og US of the A á morgun OG afmæli hinn!
Veriði skess í bili
Posted at 10:24 by
katrinamni
 |  |  |
Regína April 22, 2007 08:18 PM PDT
OK, þessi ofs reiði einstaklingur sem hótar þér öllu illu hér fyrir neðan er ég.
FRIÐUR |
 |

 |  |  |
Name April 22, 2007 08:17 PM PDT
Jæja, ég er komin með nóg af þessu Katrín.
-Nú bloggar þú unga dama, eða ég geri það fyrir þig! |
 |

 |  |  |
Kristín Laufey April 10, 2007 01:48 AM PDT
Katrín Amni !!!
Glensið er hérna !! |
 |

 |  |  |
ester April 1, 2007 10:13 PM PDT
Hæ svertingjabarn .. ætlaði bara að þakka fyrir mig, afmælisveislan var ótrúlega vel heppnuð ! Hey.. þú átt skotflöskuna þína hjá mér haha! Svo verð ég að koma til þín í vikunni því ég er búin að skilja eftir heila búslóð heima hjá þér....
ester |
 |

 |  |  |
Erla María April 1, 2007 05:08 PM PDT
Hae, langadi bara ad kvitta fyrir komuna, droppa stundum inn. Til hamingju med afmaelid um daginn ;) |
 |

 |  |  |
Eva Dögg March 29, 2007 10:51 PM PDT
Til hamó með ammó elsku lambið mitt....vonandi áttiru góðan dag í amó :*
Hlakka til að sjá þig á laugardaginn :) |
 |

 |  |  |
Jóna HÍ March 29, 2007 06:50 PM PDT
Hæ Kata krútt. Til hamingju með afmælið, kveðja frá skápalesaranum |
 |

 |  |  |
Kristín Laufey March 28, 2007 10:49 AM PDT
Ég á eftir að sakna þín þegar þú ferð til US freaking A.. En til að líta á björtu hliðarnar á því máli þá spara ég heilan helling í símreikning í leiðinni ;)
But anyways miss u already.. eins gott að ég heyri í þér áður en þú ferð í loftið, hafðu það rosa gott ( þú átt það svo sannanlega skilið), hlakka til að partý on með þér on Saturday.. |
 |

 |  |  |
Malla March 28, 2007 08:46 AM PDT
ohh góða skemmtun í USA... mig langar líka!
haha já er þá ekki tilvalið að ég óski þér til hamingju með afmælið í kommentakassanum aftur í ár, eins og í fyrra eða hittifyrra! |
 |

 |  |  |
ester March 27, 2007 10:00 PM PDT
ohh.. svo leiðinlegt að missa af afmælisveislunni þinni :( en ég lofa að kaupa eitthvað fallegt handa þér í Minneapolis ;)
hafðu það gott arabinn minn ..
ester |
 |

 |  |  |
Guðrún Birna March 27, 2007 02:19 PM PDT
Hehe kommentakerfið er greinilega ekki mjög virkt hjá þér - síðasta komment er Malla að óska þér til hamingju með afmælið í fyrra - eða hittifyrra??
|
 |

 |  |  |
Guðrún Birna March 27, 2007 02:18 PM PDT
En spennandi afmælisplön :) er pínu abbó þar sem afmælisdagurinn minn hefur ekki verið neitt spes síðan leikurinn "penni í flösku" var aðal málið :(
En svona er það að vera desemberbarn!
Þegar við erum allar orðnar fullorðnar - hvenær sem það verður nú - þá verður afmælisdagurinn minn helsti merkisdagur ársins :)
Fastur liður í upphafi aðventunnar að koma í afmæli til Guddu Bé!! Jé!
Hlakka til að sjá allan þinn vinkonuher á laugardaginn ;) |
 |

 |  |  |
Ásgerður March 27, 2007 11:25 AM PDT
haha eg fattaði skotið.. :D |
 |