Thursday, April 26, 2007
Prrrruuuump!

 

Hæææææ

Okei sko fyrst ég nenni ekki að blogga í prófum þá er e-ð MIKIÐ að ! Held að tími þessa bloggs sé liðin :( Búin að lifa í voninni lengi.. ritmátturinn hefur gjörsamlega glatast undanfarið, hvert hann hefur farið er mér dulin ráðgáta - ráðgáta sem ég hef ekki enn getað leyst...

Annars er Bókhlaðan búin að vera mitt second home sl. daga, og ég sverða annaðhvort ég er að ganga af göflunum eða fólkið sem er hér í kringum mig. Áðan var ég í kaffiteríunni og svo heyrði ég gelt, svona mannagelt... ég get svo svariða ég veit ekki enn hvort ég hafi verið með ofskynjanir eða helv. spænski gaurinn sem vinnur þarna i kaffiteríunni hafi beisiklý verið að gelta.. ástæðuna fyri geltinu skil ég þá hins vegar ekki.

Nú annað dæmi - ég sit hérna í grafarþögn og áðan heyrðist mér gaurinn fyrir aftan mig hafa verið e-ð svona að tísta eins og fugl.. ég svo í guðsbænum vona að hann hafi verið að því - því annars er ég farin að hafa verulegar áhyggjur af geðheilsu minni.

Annars myndi ég segja að þessi önn hefur gjörsamlega farið framhjá mér, skemmtilegt hvað ég segi þetta í lok hverrar annar, aldrei mun ég læra - aldrei mun ég skilja, aldrei mun ég syngja eða gelta ég veit það ekki.

Okei - ég er ekki búin með eitt próf og ég er orðin svo ógeðslega steikt.. þetta lofar ekki góðu ég get svo svariða. Í hverri kaffipásu (þær eru svona þrettán talsins yfir daginn) þá sit ég bara í hláturskasti útaf ENGU og finnst allt fyndið og sniðugt - þrátt fyrir að það er bara allskostar ekkkert fyndið við þessi próf... æj ég veit það ekki held ég þurfi að fara að taka inn einhverslags lyf við þessu.

Ljótan hefur svo sannarleg gert vart við sig - merkilegt hvað hún svíkur mann aldrei, alltaf kemur þessu elska yfir prófin - just gotta love it... Ég sem ætlaði ekkert að bregða útaf þótt að prófin væri - ætlaði bara ða halda mínu striki, skreppa smá í ræktina og setja smá púður á nebbann á morgnana - nei nei, planið fauk útúm gluggann á þriðja degi.. það er bara joggarinn, og nammið og ógeðis kaffið og bara já allt sem gerir mann ekki smart.

Ég vona að ef e-r les þetta blogg mitt mikið lengur að hann hafi komist klakklaust í gegnum þessa færslu. I did not...

Okei þá - bless þá - já ég sagði bless þá

mig langar í drykk - sterkan drykk.. bara einhvernveginn drykk...

stock photo : cocktail drink with white zin,cranberry juice, shaken, add a splash of chambord, serve with wedge of lime

skál í boðinu - thats all I have to say


Posted at 20:23 by katrinamni

Kata
May 3, 2007   04:17 PM PDT
 
Helga mín - eftir þessi próf er hægt að plata mig í allan andskotann!!!
Helga Sör
May 2, 2007   07:09 PM PDT
 
já prófin geta nú farið illa með mann sko! fallega íbúðin míner sko ekkert falleg lengur, ekki séns að ég nenni að þrífa, fer EKKERT í ræktina og borða bara pizzur! Bjarki minn er bara heppinn ef ég nenni í sturtu sko! hehehe en ég á bara 2 próf eftir :D:D:D og þá tekur við 250 tíma vinnumánuðir þar til ég fer aftur í skólan eftir áramót og tek SVEINSPRÓFIÐ! vá ef ég er svona í 2.bekk hvernig verð ég þá fyrir sveinsprófið... össsss

En gangi þér vel í prófunum! höldum síðan hitting aftur þegar sumarið er komið og allir kátir :D
ester
April 30, 2007   08:19 PM PDT
 
... Katrín ég er farin að heyra raddir, án djóks .. og það er ekki feiti gæinn í kaffiteríunni! En talandi um hann, þá kann ég nú eina góða sögu ....



Ásgerður
April 30, 2007   12:20 PM PDT
 
muniði eftir laginu "vor í lofti" í teiknimyndinni Puttalína.. :) ég man eftir því.. var einmitt að syngja það fyrir Tinnu í fyrradag :)
Íris Erla
April 27, 2007   07:57 PM PDT
 
Vor í lofti - svo sumar - og svo haust - og þá kallar Flórída - og þar verður gaman að vera saman..!!!
systa
April 26, 2007   08:53 PM PDT
 
já próf eru ekkert spes en mannstu hvað er gaman þegar þau eru búin þegar vorið er i loftinu og allir kátir:)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry
   

<< April 2007 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed