Friday, May 11, 2007
YESS

  • Ég er fríking búin í prófum !!!
  • Ég hélt að þeim myndi aldrei ljúka !
  • Ég er svo glöööööð með það!
  • Ég er svo glöð með þessa sól
  • Ég er svo glöð með að það sé föstudagur
  • Hins vegar er ég EKKI glöð með þessa gulu og svörtu röndóttu loðnu FUGLA sem virðast elta mig útum ALLT ! :(
  • Ég meina það frá mínum innstu hjartarótum að ef einn svona fugl snertir mig þá dey ég.. ég veit það bara ég dey !
  • Ég held ég þurfi að fara til sála - þar sem ég fer að fá kvíðaköst útaf þessum viðbjóðslegu dýrum sem virðast komast leiða sinna endalaust - fljúgandi útum allt, innum glugga og fleira! Ohhh
  • Annars er ég glöð
  • Ég er líka glöð að vera að fara að vinna í Landsanum í sumar
  • Fyndið hvað hlutirnir enda aldrei eins og maður planar þá
  • Ég er líka svo glöð að vera að vinna niðrí bæ í sumar
  • Ég er líka glöð með það að 30. ágúst verð ég stungin af í amk. 4 mánuði
  • Það er ógeðslega gaman
  • Mig hlakkar svo til að gera allskonar skemmtilegt í Flórída og með Írisi í amerískum bíómynda partýum
  • Ég er löngu búin að viðurkenna þetta - ég er bara ógeðslega amerísk og því verður ei breytt
  • Ég ætla að djamma um helgina
  • Ég hef ekki djammað í fimm eða sex vikur
  • Það er langur tími fyrir unga, einhleypa og barnslausa konu eins og mig
  • Því verður breytt um helgina
  • Og ég ætla í dekur með Betu á morgun í Laugum
  • Ég á það skilið
  • Ég á allt gott skilið
  • Sjitt hvað ég er jákvæð
  • Muna að kjósa rétt á morgun!

X-D

 


Posted at 19:27 by katrinamni

Eva María
May 13, 2007   10:50 PM PDT
 
til hamingju!! vonandi var gaman hjá þér um helgina beibí =)

ég er enn að og byrjaði í fyrsta prófinu í apríl.. maður heldur þetta ekki mikið lengur út... 2 dagar í lokin :)
Doddi
May 12, 2007   09:00 PM PDT
 
bíddubíddu, ef ég skil tvo punkta þarna rétt, þá verður þú ekki lengur ung, einhleyp og barnlaus eftir helgina.... stór helgi framundan??
Íris Erla
May 12, 2007   08:32 PM PDT
 
það verður ekkvað skrautlegt þegar þú kemur út... við gerum kanann vitlausan...;)

ester
May 12, 2007   03:43 PM PDT
 
Til haaaaaaaaaamingju með prófin "!!!!! shit hvað ég er að deeeyja úr öfund, það er glampandi sól úti og fokkans LAUGARDAGUR og allir vinir mínir bunir í prófum og að fara djamma nema ég ... nei nei nei ég sit uppá elsku þjóðarbókhlöðu sem ég er farin að hata af öllum lífs og sálarkröftum og læri ... muhuhuhuhu..
Regína
May 11, 2007   08:41 PM PDT
 
Sú var tíðin að Katrín Amni hataði Ameríku og fannst allt amerískt klígja. En Guði sé lof að það er búið. USA rúlar nebbla, og rúlar feitt.

Annars var ég rétt í þessu að fá rós frá Samfylkingunni. Þannig að það er spurning hvort ég kjósi þau ekki bara. -Nema nottla að Þorgerður Katrín hringi dyrabjöllunni á næstunni með eitthvað veglegra en visna rauða rós.

Segðu henni að ég bíði. Eskivellir 9a.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry
   

<< May 2007 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed