Sunday, June 17, 2007
Who am I kidding ?

 

Þetta blogg fær ekki að deyja - ég ætla ekki að loka því en lofa ekki mörgum færslum áður en ég fer út í haust, þá skal allt blómstra hér úr skrifum og myndum (ef ég drullast til þess að kaupa mér myndavél einn daginn) Koma svo !!

  • Punktar eru kúl held ég bara
  • Þetta sumar hefur byrjað svona allsvakalega vel held ég bara
  • Vinnan gengur vel - þó svo suma daga líður mér eins og það séu 4 heilasellur eftir í hausnum á mér en þó einungis tvær starfræktar
  • Well ó well - engu að síður rosalega gaman og mjög spennandi í alla staði
  • Ekki skemmir að liðið sem ég vinn með er mjög samheldið og jafn fáránlega steikt og ég sem gerir þetta allt hið skemmtilegasta
  • Annars skrapp ég til Akureyrar í byrjun mánaðar í eitt rosalegasta partý aldarinnar þar sem ég kom heim með glóðurauga, skurð á nefinu og brákað enni (ef hægt er að bráka ennið á annað borð)
  • Semsagt - ég hélt í öllu mínu sakleysi kl. fimm um morgunin eftir partýið, ágætlega í´ðí að ég gæti gert arabaflikk á stofugólfinu...
  • Ég komst semsagt að því að ég get ekki gert arabaflikk mikið lengur
  • Nema góð lending teljist vera á nefinu
  • Jæja
  • Matarboð fyrv. stjórnar Vöku var sl. föstudag og formaðurinn kunni svo SANNARLEGA að blanda hin ýmsu skot og drykki og hvað þetta allt heitir
  • Allavega var þynnka gærdagsins hin undarlegasta í langan tíma
  • Náðum samtsem áður að afreka marga hluti í gærkvöldi þrátt fyrir skjálfta og hausverk
  • Gærkvöldið einkenndist af út að borða með giftingargæs, matarboð með geðveikum humri, útskriftarveislu með garðtjaldi og svo gæsunarframhaldspartý - allt þetta á einu kvöldi, geri aðrir betur !
  • Slóvenía eftir 10 daga og brúðkaup í Slóveníu eftir 13 daga
  • Það verður fallegt
  • Ferðalag dauðans engu að síður en mér er allveg sama svo lengi sem ég fæ að sjá vinkonu mína gifta sig - úújeeee
  • Og auddað fá sér kokteila og tji-hilla
  • I´m out of hía
  • Gestabloggarar velkomnir

 ~ Katan ~


Posted at 21:58 by katrinamni

Birgit flughrædda
June 21, 2007   03:42 PM PDT
 
Berrössuð!
Mar kíkir alltaf reglulega á þig...
Veit ekki af hverju hins vegar;0)
ihihi!
Hvað er verið að fara að gera í Florida?

Biggz

ester
June 21, 2007   11:25 AM PDT
 
vá, ég er alltaf jafn hissa þegar ég kem hérna inn og sé nýtt blogg ... það er eins gott að þú verðir dugleg að blogga þegar þú ferð út í haust !
Kristín Laufey
June 20, 2007   04:02 PM PDT
 
Ég skal gerast gestabloggari .. Enda vel updeituð af lífi þínu gæskan..

En jæja jæja back 2 work..

Koma svo !!!

Kaffi og hafrakaka any time ;)
Name
June 18, 2007   02:14 PM PDT
 
Þú ert náttúrulega arabaflikk-drottningin og steiktasta gellan í bænum.

Haltu áfram að blogga kerling...
Snús Laufið
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry
   

<< June 2007 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02
03 04 05 06 07 08 09
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed