Prófin búin - og hvað gerist þá jújú ég hætti að blogga. Það er merkileg fylgni þarna á milli, stenst alltaf hreint.
En það er víst komið nýtt ár sem ég tók á móti fagnandi. Árið 2007 gengið í garð og mér líst bara svona ágætlega á þetta ártal. Held að það eigi eftir að gerast margt skemmtilegt. Annars fer maður að detta í töluna 24 sem er svosem ágætt, mér finnst ég hvort eð er alltaf jafn ung.
Ég held að ég verði svona týpan sem finnst hún alltaf vera ung sama hvað - enda á ég það nú reyndar ekki langt að sækja þar sem 52 ára gömul móðir mín stelur fötunum mínum jafnt sem snyrtivörum ... (jú og ég stel hennar dóti á móti) ...og hún heldur oft að hún sé ekki komin yfir þrítugt - blessunin. Æ ég held að það sé bara gott, frekar en að verða gamall um 35 ára aldurinn.
Annars var árið 2006 sem var rétt í þessu að ljúka ansi viðburðarríkt þegar ég lít til baka.
Held ég taki þetta í punktum..
* Ég byrjaði á því að fara til Boston í viku í byrjun janúar - þar slappaði ég af, verslaði og overdozaði á Cheesecake Factory.
* Í febrúar var ég plötuð í Vökustarfið og ekki sé ég eftir því - yndislegt fólk sem ég hef kynnst þar og fáránlega öflugur liðsandi. Febrúar mánuð endaði ég svo á vodka fyllerý í Finnlandi í 15 stiga frosti - ógleymanleg ferð.
* Vorönnin flaug framhjá mér eins og fyrri daginn og endaði ég nokkuð ánægð með hana.
* Tímamót held ég barasta í skólanum þar sem ég var farin að sjá fyrir endanum á náminu - jah sem eru líka merkileg tímamót því það þýðir að það styttist í það að maður verður fullorðin.. ó men.. hagfræðingur ? hvað er það ?
* Í maí var farið í þriggja vikna geðsjúka ferð til USA - borgirnar San Fransisco, Los Angeles og Las Vegas voru heimsóttar. Engar af þeim í fyrsta skipti í mínu tilfelli... já ég er trú og trygg Californiu - ég ELSKA hana og mun vonandi heimsækja hana sem oftast í náinni framtíð!
* Ég átti mjög gott sumar í Landsbankanum - komst í gott starf með frekju og smá skvettu af metnaði - var meira að segja send alla leið til Egilstaða í viðskiptaferð ;) úje (kommon hver er munurinn á Egilstöðum og London ?? nei bara spyr)
* Með enn meiri skvettu af annaðhvort frekju eða metnaði man ekki hvort það var - þá fékk ég mínu framgengt og fékk að halda áfram í vinnunni með skólanum.
* Þegar blessuð sólin lét loks sjá sig í sumar þá var ófáum stundum eytt niðrí miðbæ eftir vinnu með jafnvel svosem eitt hvítvínsglas í hönd. (Já og ég og Beta fórum einu sinni heim fullar klukkan 18:00)
* Sumarið mitt var bæði frábært og ekki frábært
* En það leið of hratt nú bara eins og öll sumur eru farin að gera.
* Startaði haustinu með smá verslunarferð í London - þar sem Topshop og sushi voru í hávegum höfð
* Vökustarfið fór á fullt og ég skrapp svo til Danmerkur rétt fyrir prófin og heimsótti hana Systu mína sem ég hafði saknað svo sárt
* Árið 2006 endaði svo í hrikalegri prófatörn sem ætlaði engan endi að taka
* Eftir prófatörnina datt ég í það ....í tvær vikur ! Ég er búin að vera vel marineruð síðan fyrir jól sem er svo NOT me ! Mjög fyndið - er reyndar að súpa seyðið af því núna - er búin að vera timbruð í 5 daga.
* Jólafríinu eyddi ég líka undir sæng með bók í hönd - ég er svo mikill bókaormur en sökum háskálanáms þá er ég bara farin að lesa í jólafríum. Er að byrja á þriðju bókinni núna og á tvær eftir. Þá meiga skólabækurnar taka við...
* Á árinu 2006 hef ég lært meira um sjálfa mig en nokkurn tímann fyrr og er ég ánægð með það - þó ekki endilega hvernig ég fór að því. Ég hef bæði komist að ýmsum veikleikum sem og styrkelikum í fari mínu. En allt sem drepur mann ekki - styrkir mann.
* Á árinu 2006 hef ég styrkt vinabönd við nokkra yndislega stelpur sem ég held að ég mun eiga að - að eilífu. Sumar þeirra voru mér ókunnugar í byrjun ársins en eru mér ofboðslega nánar í dag. Mér þykir óendanlega vænt um þær og ég held barasta að þær viti nákvæmlega hverjar þær eru þar sem ég hef reynt að leggja mig fram við það að segja þeim það.
* Ég hef komist að því að vinskapur byggist ekki á því hversu lengi vinir hafa þekkst.
* Ég hef líka komist að því að vinskapur breytist - vinir verða kunningjar og kunningjar verða að vinum. Það eru staðreyndir þegar kemur að því - og því á maður ekki að svekkja sig á því.
* Á þessu ári hef ég verið hamingjusöm, óhamnigjusöm, glöð, leið, spennt og kvíðin.
-------------------
Á nýju ári ætla ég að styrkja allt það góða sem ég hef lært og komist að - og á móti ætla ég að setja allt það vonda eða neikvæða fyrir aftan mig og halda áfram eða jafnvel byrja upp á nýtt á sumum vettvöngum.
Á nýju ári ætla ég að halda áfram að kynnast sjálfri mér og styrkja kosti mína og viðurkenna galla mína.
Svona er ég :)
